Heilsuþorp á Spáni

Áskorun til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnar Íslands um leyfi og fjárhagslegan stuðning við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Spáni.

Gott að eldast á Spáni.


Þúsundir Íslendinga aldraðir, öryrkjar og aðrir, dvelja langdvölum á Spáni, mikilvægt er að þessi hópur fái góða heilbrigðisþjónustu. Vegna takmarkaðs framboðs á íslenskum hjúkrunarheimilum og mikils álags á íslenska heilbrigðiskerfið, skora ég á heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller, að veita samþykki, annars vegar fyrir hjúkrunar-, öldrunar- og endurhæfingarþjónustu á Torrevieja-svæðinu á Spáni, og hins vegar fyrir rekstrarstuðningi frá íslenska ríkinu (Sjúkratryggingum) vegna þjónustunnar, til dæmis 40 hjúkrunarrýmum til 10 ára, sem rekin væru á íslenskri kennitölu og með íslensku fagfólki, áþekkt og aðrar Norðurlandaþjóðir hafa gert fyrir sitt fólk. Af hverju ætti að hefja rekstur heilbrigðisþjónustu á Spáni?

  1. Ódýrara húsnæði og lægri rekstrarkostnaður þess.
  2. Lægri fæðiskostnaður og möguleiki á hollara fæði, svo sem nýju grænmeti og ávöxtum allt árið.
  3. Mun lægri lyfjakostnaður á Spáni en á Íslandi.
  4. Fólk hefur lýst yfir að í veðurfarinu og útivistinni á Spáni hafi það fengið betri lífsgæði, losnað við inntöku á lyfjum og gigt og psoriasis batnað, svo eitthvað sé nefnt.
  5. Möguleiki fyrir endurhæfingu sjúklinga, með tímabundinni dvöl í sólinni og hitanum á Spáni (sem íslenska ríkið myndi styðja við).
  6. Margir eldri Íslendingar á Spáni tjá sig um að þar séu þeir virkari og hafi myndað gott félagslegt net, og þrátt fyrir versnandi heilsu og hreyfigetu með hækkandi aldri, vilja þeir dvelja áfram á Spáni, ef þeir hafa möguleika á þjónustu.
  7. Uppbygging og rekstur íslenskrar heilbrigðis- og öldrunarstofnunar á Spáni minnkar álag og eftirspurn eftir dvöl á hjúkrunarheimilum á Íslandi og er jafnframt hagkvæmari á hvern einstakling en á Íslandi. hefur
  8. Verið er að tala um að fjárfesta í Heilsuþorpi sem hefur upp á að bjóða 80 öryggisíbúðir og byggingu með 100 herbergjum fyrir sjúkrarúm, ásamt aðstöðu til endurhæfingar.

Ábyrgðamaður , Guðrún Gyda Ölvisdóttir 
Search